Rödd í eyðimörkinni
Michael Dean Odin Pollock - World Citizen
Michael Dean Odin Pollock, eða bara Mike Pollock, syngur, flytur ljóð og leikur á gítar. Einnig koma fram á plötunni þau Sarah Elizabeth, Quentin Sharpenstein, Gary Falk, Thad Hannel, Andy Cook, Daniel Pollock, Jóhanna Hjálmtýsdóttir, Tanya Pollock, Ron Whitehead, Nancye Browning og "The Sons & Daughters of Kentucky Celebration Choir". Michael Pollock og Ron Whitehead stýrðu upptökum en vélamenn voru Jeff Carpenter og Mike Lynch.

WORLD Citizen er afrakstur blómlegs samstarfs sem Mike Pollock hefur átt við ljóðskáldið, athafnamanninn og hinn allra handa skörung Ron Whitehead sem gerir út frá Louisville, Kentucky, þar sem þessi plata var tekin upp.
Mike hefur komið víða við á löngum listferli og verið býsna virkur, þó sérstaklega hin síðari ár. Það er óþarfi að reka sérstaklega veru hans í Utangarðsmönnum og fleiri pönk- og rokksveitum hér á Íslandi en undanfarið hefur hann haslað sér völl sem ljóðskáld og hefur staðið að ýmsum uppákomum og gjörningum. Gítarinn er heldur aldrei langt undan og Mike og Danni bróðir hans reka nú Smokey Bay Blues Band, þar sem leitað er í blúsrætur.
Á World Citizen fer Mike víða um velli, blandar ólíkum stílum saman og víxlast á milli hávaða og hljóðlátra stemmna og styðst við m.a. rokk, blús, pönk, þjóðlagatónlist, gospel og ljóðalestur.
Þessi blanda heppnast vel, stílsveiflurnar vinna með plötunni og það er undirliggjandi þráður sem heldur öllu saman, einhver andi sem gerir World Citizen sem heild aðlaðandi.
Mike virðist líða jafnvel í harðasta pönki, í ljóðalestri, gömlum blús eða þá angurværum, dramatískum lögum (eins og í hinum bráðgóðu "It's A Shame" og "4U"). Fleira má taka til. Titillagið er hratt og pönkað á meðan "Our Town" er skuggalegt og hægstreymt, með myrkum tölvuhljóðum undir. "Lost & Found" er það lag sem næst kemst því að vera hefðbundið, tilfinningaríkt og melódískt. Strax þar á eftir kemur "Desert/Dream Vision", þungt og mikið, þar sem gítarinn ýlfrar í hávaðaorgíu og er brotið upp með þrumuraust skáldsins Ron Whitehead. Þannig er vaðið úr einu í annað og það með fínum árangri. Skemmtilega er þá unnið með lag Megasar, "Lóa Lóa" og sömuleiðis Stones lagið "No Expectations".
Aðdráttarafl plötunnar er helst til komið vegna sterkrar nærveru Mikes sjálfs. Þeir sem til þekkja kannast við öryggisglampann í augum hans og sjarmerandi brosið en maðurinn er mikill eilífðartöffari, býr yfir áreynslulausum persónutöfrum sem bera plötuna uppi. Honum tekst að vera bæði eitilharður og mjúkur og er jafn sannfærandi í báðum hlutverkum. Margir fleiri hjálpa þó til við að gæða verkið hráum og lifandi hljómi og ber sérstaklega að geta þáttar söngkonunnar og banjóleikarans Sarah Elizabeth sem kemur sterk inn í nokkrum lögum.
World Citizen er þekkilegasta plata, ber höfundi vel vitni og er honum til sóma.
Arnar Eggert Thoroddsen