Rafrænt hanastél Rafmessa í Nýlistasafninu
Rafrænt hanastél
Rafmessa í Nýlistasafninu Rafmessa verður haldin í Nýlistasafninu í kvöld. Kristín Björk Kristjánsdóttir kynnti sér hvað framundan væri og ræddi meðal annars við þá Pollock-bræður, Danna og Mike. DAGSKRÁ Rafmessunnar kl. 20.00 í kvöld er hlaðin snilld. Fram koma: Sigur Rós, Voices without Restraint, Megasukk, Spúnk: Keðjusög í hálsinum, Bragi Ólafsson, Jóhanna Hjálmtýsdóttir, Ósk, Auður Jónsdóttir, Tanya, Sneak Attack, Stína Bongó og Gak.
Mike og Danni Pollock, fyrrum Utangarðsrokkarar eru meðal skipuleggjenda Rafmessunnar. Ásamt Birgittu Jónsdóttur og Ron Whitehead skipa þeir Voices Without Restraint eða Hömlulausar raddir og hafa það að augnamiði að stefna saman tónlist, texta, óhljóðum og öllu sem þeim dettur í hug í rafrænt hanastél og hrista vel. Rafmessan er fyrsta verkefni VWR í röð annarra slíkra hér á landi en Ron Whitehead hefur áður skipulagt um 300 fjöllistahátíðir um víða veröld. "Það er allt of mikið um það að fólk sé að rugla hvað í sínu horni og keppa hvað við annað," segir Mike. "Menn afkasta miklu meiru með því að vinna saman og það er nákvæmlega það sem við viljum gera með Voices Without Restraint."
Raddirnar hömlulausu eru að fara að taka upp geisladisk ("From Louisville to Reykjavík and Beyond") sem á að koma út í vor. Meðal þeirra sem hafa talað um að vinna með þeim eru rússneski fiðluleikarinn Jelena, Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson, "psychobilly"- rokkarinn Jordan Green, Birgitta Jónsdóttir sem segist vera að "koma út úr skápnum sem söngkona" og írski hörpuleikarinn Emira O'Connor svo fáeinir séu nefndir. Í vor stefnir VWR svo á að skella sér á túr til Bandaríkjanna ásamt Sigur Rós, ekkert er þó enn niður neglt. "Kannski verður þetta bara labbitúr, kannski siglingatúr eða flugtúr, það kemur bara í ljós," segir Danni um fyrirhugaða tónleikaferð.
Þeir Pollock-bræður hafa margt brallað frá því þeir gerðu upp snúrur sínar í Utangarðsmönnum þó þeir hafi farið hljótt um. Danni er nýkominn heim frá Chicago þar sem hann lét til sín taka í byggingabransanum upp á náð ítölsku mafíunnar þar í borg þar sem hann bjó til "nágrannahús" ásamt því að fikta sig áfram með eigin tónlist í eldhúsinu. Stundum vann Danni með hinum og þessum skífuþeyturum sem hann er búinn að gleyma hvað hétu en kölluðu sig allir DJ eitthvað. Nú er hann hamslaus rödd á kvöldin en baðvörður á daginn.
Mike hefur stungið nefinu taktfast upp á yfirborð Reykjavíkur síðastliðin ár með ljóðaflutningi hér og hvar og er nú að fara að gefa út bókina "No Shortcut to Paradise" með smásögum, ljóðum og ljósmyndum í vor. Fleiri en Mike eru að plotta útgáfu snilldar því Birgitta Jónsdóttir hefur, ásamt því að sjóða saman bók, verið að bauka eitthvað með þeim félögum úr Reptilicus undir heitinu Foolz og stefna þau á að gefa út geisladisk í vor með ljóðum eftir Birgittu og tónlist frá strákunum sem vafalaust verður hressandi ef eitthvað er að marka þeirra fyrri störf.
Bókin hennar Birgittu, "Wake Up" sem inniheldur bæði texta og málverk eftir hana sjálfa mun einnig koma út í vor. Það verður greinilega allt vitlaust í vor. Þetta fólk hefur tapað sér algerlega í áramótaheitunum og sagt: "Á þessu ári ætla ég að gefa út fimm bækur og þrjár plötur og halda allavega hundrað og fimmtíu tónleika," í stað venjulegu loforðanna um að fara í megrun og hætta að drekka. Skál fyrir framtaksseminni!
Sigur Rós hefur ekki látið mikið á sér kræla í tónleikahaldi upp á síðkastið, enda staðið á haus við að galdra upp væntanlegan geisladisk. Þeir vinna nú í rólegheitum við lokasnertinguna á disknum sem enn er óvíst hvenær kemur út. Það er alltaf einhvers staðar í návígi við trúarlega upplifun að fylgjast með Sigur Rósar strákunum hugsa á hljóðfærin sín þegar vel liggur á þeim. Bakið á manni verður gítarinn sem fiðluboginn sendir gæsahúðina eftir og þessi rödd! Hvaðan kemur hún eiginlega? Allavega ekki frá bassanum hans Gogga sem hann hrindir mjúklega áfram af stökum einfaldleika í fylgd áhyggjulausra trommustroka Gústa og Kjartans sem lætur til sín taka á allan fjandann milli þess sem hann líður mjúklega eftir hljómborðinu. Það þarf enginn að taka geðlyfin sín í kvöld því Sigur Rós mun vafalaust sjá um bæði róandi og örvandi áhrifin eftir undangengnar keðjusagir, trumbuslátt, orðahristing, teknóskrímsli og allt það sem gott rafhanastél leiðir af sér.
ÞÁTTTAKENDUR rafmessunnar sem haldin verður í kvöld og verður væntanlega alveg rafmögnuð rafmessa.