Ljóðavakning í MH
LJÓÐAUNNENDUR og bítnikkar fjölmenntu á "fjöl-lista" eða "multi-art"-kvöld í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð föstudagskvöldið 9. október. Ljóðskáld komu fram og fluttu ljóð sín með eða án tónlistar eða áhrifshljóða. Af stemmningu og viðtökum er óhætt að fullyrða að ljóðið, og bítið, er hvergi nærri dautt úr öllum æðum.
Ljóðavakning
í MH
LJÓÐAUNNENDUR og bítnikkar fjölmenntu á "fjöl-lista" eða "multi-art"-kvöld í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð föstudagskvöldið 9. október. Ljóðskáld komu fram og fluttu ljóð sín með eða án tónlistar eða áhrifshljóða. Af stemmningu og viðtökum er óhætt að fullyrða að ljóðið, og bítið, er hvergi nærri dautt úr öllum æðum.
Rúm tylft góðra og efnilegra listamanna steig á svið og flutti fjölbreytta dagskrá. Hver með sínu nefi. Efnisskráin endaði á bandarísku listamönnunum Frank Mezzina og Ron Whitehead, sem eru báðir þekkt ljóðskáld og "líflegir flytjendur" í sínu heimalandi. Þeir voru, að öðrum ólöstuðum, stjörnur kvöldsins og hreinlega kveiktu í salnum. Með ljóðum!
Á undan þeim komu fram: ljóðskáldið Michael Pollock, sem auk þess að flytja ljóð og "klippitexta" kynnti flytjendur og kynti salinn; Birgitta Jónsdóttir söng sín ljóð við lög eftir Daniel Pollock; Guðrún Eva Mínervudóttir flutti krassandi ástarprósa úr nýútkominni bók; Auður Jónsdóttir flutti "dagbókarljóð"; Jóhanna Hjálmtýsdóttir söng undir með Pollock og Whitehead; Sneak Attack (Marlon Pollock) framleiddi ambient/jungle-teknó- hljóðlist, sér og með flytjendum; GAK flutti ljóð og sá um myndband og sviðsskyggnu; Steindór Grétar Kristinsson sá um ambient-tónlist á milli atriða; Tanja Lind Daníelsdóttir flutti ljóð við teknótakt; Stína kom fram með tríói Dr. Benways; Eyvindur Karlsson, Sigurbjörg Sæmundsdóttir og Jón Gunnar Ólafsson fluttu ljóð í sameiningu; og vængjuð stúlka, Björk María Kristbjörnsdóttir, fór með ljóð.
Ljóð án landamæra
Auk þess að vera angi af þeirri ljóðavakningu eða -endurreisn sem á sér nú stað í Bandaríkjunum og víða um lönd var kvöldið liður í kynningu á alþjóðlegri ljóðahátíð sem haldin verður á Íslandi í maí árið 2000. Vinnuheiti hátíðarinnar er "Ljóð án landamæra 2000" ("Words Without Restraints 2000"). Stefnt er að því að hátíðin verið stór í sniðum og von er á fjölmörgum erlendum gestum og listamönnum.
Hátíðin verður haldin undir hatti Margmiðlunarstofu Íslands, en aðaldriffjaðrirnar eru ljóðskáldið Birgitta Jónsdóttir (framkvæmdastjóri), Ásgerður (verkefnisstjóri) og Michael Pollock ljóðskáld (almannatengsl). Til tíðinda telst að Ron Whitehead, sem hefur staðið fyrir margháttaðri útgáfustarfsemi um árabil, hefur gengið til liðs við verkefnið sem með-framleiðandi.
Endurvakning ljóðsins
Þótt sala á ljóðabókum sé jafnan treg er greinilegt að ljóð í lifandi flutningi höfðar (enn) til fólks. Enda ljóðið upprunnið úr kviku orði. Viðtökur á ljóðamaraþoni í Iðnó á Menningarnótt Reykjavíkur í ágúst síðastliðnum eru til marks um það, ekki síður en velheppnað kvöld í Norðurkjallara.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson LJÓÐINU fagnað í Norðurkjallara MH.
RON Whitehead kveikti í salnum með sínum ljóðum.
BIRGITTA Jónsdóttir hugfangin. Vinstra megin við hana er Frank Mezzina og í bakgrunni ungskáldið Tanja í blúndum og sjiffoni.
MICHAEL Pollock, ljóðskáld og kynnir kvöldsins.
FRANK Mezzina hafði erindi sem erfiði á ljóðakvöldi.