Ron Whitehead á Súfistanum
Ron Whitehead á Súfistanum
RON Whitehead les úr verkum sínum á Súfistanum, bókakaffi, Laugavegi 18, miđvikudaginn 7. október kl. 20. Hann mun ennfremur árita bćkur sínar og hljómplötu. Sérlegir gestir verđa ljóđskáldin Michael Pollock og Birgitta Jónsdóttir, sem munu lesa úr verkum sínum.
Ron Whitehead er Bandaríkjamađur, ljóđskáld, rithöfundur, frćđimađur, ritstjóri og útgefandi. Hann er prófessor í bókmenntum og kenndi um árabil viđ háskólann í Louisveille í Kentucky. Whitehead hefur ferđast um heim allan og lesiđ úr verkum sínum og haldiđ fyrirlestra. Ţetta er í fyrsta sinn sem Whitehead kemur til Íslands, segir í fréttatilkynningu.
Ron Whitehead er útgáfustjóri The literaty renassance, White fields Press og Published in heaven . Í starfi sínu ţar hefur hann gefiđ út verk fjölda listamanna og rithöfunda, ţeirra á međal má nefna Nóbelsskáldiđ Seamus Heaney, Dalai Lama, Bono, Yoko Ono, Allen Ginsberg og William Buroughs.
Ađgangur ađ dagskrá Súfistans er ókeypis.