Ljóðið er beittara en byssan
ÖLL dýrin í skóginum eiga að vera vinir en þau þurfa ekki að vera sammála. Eitthvað á þá leið gæti boðskapur The Viking Hillbilly Apocalypse Revue verið.
ÖLL dýrin í skóginum eiga að vera vinir en þau þurfa ekki að vera sammála. Eitthvað á þá leið gæti boðskapur The Viking Hillbilly Apocalypse Revue verið. Að minnsta kosti veit hópurinn að samstarf Íslendinga og Bandaríkjamanna getur verið gjöfult en hann fór í tveggja mánaða ferðalag um Bandaríkin á síðasta ári. Forsprakkarnir Michael Pollock tónlistarmaður og Ron Whitehead skáld hófu samstarf árið 1998 og hafa síðan unnið saman að ýmsum verkefnum.
Hópinn, sem kemur fram í Nýlistasafninu í kvöld og annað kvöld, mynda Ron Whitehead, Frank Messina, Pollock-bræður, Sarah Elizabeth, Bragi Ólafsson, Inspector 99, L.B.H. Krew, Thordeez og Megas. Þarna sameinast skáld og tónlistarmenn af ólíkum kynslóðum og þjóðerni og er uppákoman því kölluð fjölþjóðakynslóða hljómorðasjónleikar.
Lífrænn hópur
Í kjarnann mynda Íslendingar og Bandaríkjamenn frá Kentucky hópinn en hugmyndin er sú að hann sé opinn og breytilegur, útskýrir Whitehead.
"Sarah er ný í hópnum. Hún er ótrúleg söngkona, sem syngur hefðbundna fjallatónlist frá Kentucky, kennda við Appalachean-fjöllin. Tónlistin hennar hljómar eins og hún komi beint úr fjöllunum. Andy [Inspector 99] hefur verið með frá upphafi. Hann spilar á didgeridoo og er myndlistamaður og skáld," segir Whitehead en hann hefur einnig starfað náið með fyrrnefndum Frank Messina.
"Frank og ég höfum ferðast saman í níu ár, bæði um Evrópu og Bandaríkin," segir Whitehead en þeir eru einnig á leiðinni til Bretlands. Ferðalagið er kennt við skáld á stríðstímum, útskýrir Whitehead. "Það ríkir mikil andúð á Bandaríkjamönnum í Evrópu og víðar. Eitt sem við viljum koma á framfæri er að fólk getur verið ósammála um stríð en samt haldið vinskap. Við Frank deilum ekki stjórnmálaskoðunum. Við getum deilt ákaft en í lokin föðmumst við og engin vinslit verða," segir Whitehead, sem vill ekki láta bugast, og berst fyrir friði.
Hann liggur ekki á skoðunum sínum frekar en aðrir í hópnum. "Þetta er aðgerðastefna með ljóðum," segir Messina.
Ögrandi heiðarleiki
Whitehead vonar að í kvöld og annað kvöld eigi hljómorðasjónleikar Viking Hillbilly Apocalypse Revue eftir að hreyfa við viðstöddum. "Það sem við deilum með áhorfendum er ögrandi í eðli sínu. Við eigum eftir að deila með þeim lögum og ljóðum um óréttlæti, fátækt og stríð. Ég trúi ekki á pólitíska réttsýni, heiðarleikinn er mikilvægastur. Við þurfum að tjá okkur."
Pollock segir að hlutverk ljóðskálda sé mikilvægt á þessum síðustu og verstu tímum. Hann segir fréttir í fjölmiðlum í Bandaríkjunum vera síaðar. "Upprunalegt hlutverk ljóðskáldsins er að segja fólki fréttir af heiminum og að segja sannleikann. Ljóðskáldin eru rödd fólksins."
Messina er sammála: "Þetta er bókmenntabylting. Fólk er sífellt að verða meðvitaðra um aðra menningaheima, ekki endilega í gegnum fjölmiðla heldur vegna hins ritaða og talaða orðs. Við færum fólk nær hvort öðru."
www.tappingmyownphone.net www.spokeface.com
The Viking Hillbilly Apocalypse Revue í Nýlistasafninu föstudags- og laugardagskvöld kl. 21. Myndin Who Owns Jack Kerouac? sýnd kl. 19. Miðaverð 500 kr.