Ýmsir - Kentucky Roots
Fjölskyldualbúm Rons
Impossible Records, Published in Heaven
Kentucky Roots, diskur með ýmsum flytjendum sem Ron Whitehead setti saman. Fram koma á disknum Ray Render, Greta Render Whitehead, Jo Carolyn Patton, Tyrone Cotton, Hanna og Sarah Daugherty, Michael Pollock, Ron Whitehead, Bu and Stu Holman, Robin Tichenor, L.B.H. Krew, Susi Wood og David Amram tríóið. Impossible Records, Published in Heaven gefur út.

KENTUCKY Roots er einskonar fjölskyldualbúm Rons Whiteheads, á skífunni eru lög með ýmsum listamönnum sem eru ýmist tengdir honum fjölskylduböndum eða vina, allt frá upphafslagi skífunnar, "The Mississippi River Blues" með Ray Render, afa Whiteheads, sem tekið var upp 1946, brakandi kassagítarblús, í nýstárlegt raftónlistarrapp L.B.H. Krew, sem flytja ljóð eftir Hannah Ali og tekið var upp á þessu ári. Um miðbik plötunnar fer Ron Whitehead sjálfur með ljóð sem er einskonar stefnuyfirlýsing plötunnar; hún er ekki bara fjölskyldualbúm heldur er hann líka að fagna tónlistinni sem hefur ólgað í kringum hann allt frá barnsaldri, "tónlistin bjargaði lífi mínu og Jesú sálu minni".
Meðal flytjenda er áðurnefndur afi Rons Whiteheads, en einnig móðir hans, frænkur og systir. Einnig koma margir vinir hans við sögu, hið íslenska L.B.H. Krew sem áður ver nefnt, Michael Pollock, David Amram og fleiri.
Sjálf lögin eru misjöfn að gæðum sem vonlegt er, komin úr svo mörgum áttum. Það kemur varla á óvart að tvö lög eftir John Prine eru með þeim bestu, sérstaklega seinna lagið sem þær frænkur Rons Whiteheads, Hanna og Sarah Daugherty, syngja. Gamli Mississippi Fred McDowell-slagarinn "You Gotta Move" er líka góður og Michael Pollock flytur hann af sönnum innblæstri við óvanalegt undirspil þar sem túba og saxófónn eru í aðalhlutverki, en rafgítarinn hefði mátt lenda framar í hljóðblönduninni. Lag L.B.H. Krew er líka skemmtilegt en fullstutt. Lag Stephens Fosters "My Old Kentucky Home", sem Susi Wood syngur einkar vel, er líka mjög gott lag, sem flestir þekkja, og eins "Blue Moon of Kentucky" eftir föður Bluegrass-tónlistarinnar, Bill Monroe, sem kemur einkar vel út í flutningi Robin Tichenor án undirleiks. Einnig er vert að geta flutnings Ron Whiteheads sjálfs á ljóði sínu um áhrifin sem tónlist hafði á hann í æsku, gott ljóð og skemmtilega flutt.
Mikið af upptökunum frá þessu ári virðast vera teknar upp frammi fyrir áheyrendum, hugsanlega frammi fyrir öðrum listamönnum á skífunni, en ýmsilegt gefur til kynna að nokkur laganna hafi verið tekin upp í fjölmennri vinnulotu, enda eru menn að leika undir og syngja hver hjá öðrum. Gaman hefði verið að fá upplýsingar um hvort þessi tilgáta er rétt, en hún myndi skýra hve tónlistarmennirnir eru afslappaðir - eins og þeir séu að spila fyrir vini og kunningja en ekki hljóðnema.
Árni Matthíasson