Ýmsir listamenn - From Iceland to Kentucky and Beyond
Ljóð milli landa
Ómi
Ljóðatónlistardiskur með þeim Michael Dean Óðni Pollock, Ron Whitehead, Braga Ólafssyni, Susie Wood, Danny O. Bryan, Jim James, Mickey Hess og fleirum. Tekinn upp í Kentucky og á Íslandi. Ómi gefur út.

LJÓÐ OG tónlist eiga vel saman, hvort sem menn eru að ljóða yfir svellandi bíbop, sveitatónlist eða myljandi rokk. Sú staðreynd er ekkert leyndarmál ljóðskáldum sem mörg eru einnig rokkskáld nú á tímum þegar ein besta leiðin til að koma kveðskap á framfæri er að klæða hann í rokkfötin eða bara gallabuxur og köflótta skyrtu sveitamannsins eins og er á disknum From Iceland to Kentucky and Beyond, en hann hefur meðal annars það sér til ágætis að leiða saman íslensk ljóð og erlend. Þeir Michael Pollock og Ron Whitehead áttu hugmyndina að útgáfunni og hún komst á koppinn þegar Michael og Bragi Ólafsson fóru til Kentucky í mars sl. og tóku upp megnið af disknum með Whitehead og fleiri tónlistarmönnum og skáldum.
Tónlist er samtvinnuð ljóðunum og flutningur oft spunakenndur, eins og tónlistin sé að verða til um leið og ljóðin. Það gefur einkar skemmtilega lifandi stemmningu, ekki síst þegar vel tekst til að flétta saman ljóð og texta eins og í flutningi Rons Whiteheads á Kentucky Blues, þar sem nútímalegur flutningur er skemmtilega tengdur fortíðinni með upphafs- og endastefi. Gaman er líka að heyra samlestur/leik Braga Ólafssonar og Danny O'Bryan, þar sem því er líkast að O'Bryan sé að hlusta á ljóðið samfara því sem hann spilar og lækkar í sér eða stoppar til að hlusta á ljóðin. O'Bryan leikur einnig undir hjá W. Loran Smith, en flutningur þess síðarnefnda er svo kraftmikill að menn taka varla eftir saxófóninum, það eru færri eyður fyrir blásturinn.
Snake Bite Michaels Pollock er skemmtilegt ljóð um hetjudýrkun æskunnar þar sem faðirinn heillar drenginn með ævintýralegum sögum með lærdómsundirtón og fellur vel saman undirleikur Susie Wood. Hún flytur einnig lag sjálf á skífunni, upphafslagið The L & L Don't Run Here Anymore eftir Jean Ritchie sem hún snýr úr Apalachian-söng í seinni tíma mótmælamærð.
Ron Whitehead á tvö ljóð á disknum, áðurnefnt Kentucky Blues og Apocalypse Rag, sem er heldur síðra upphrópanaljóð, en tónlistin við það er skemmtilega rómantísk og eiginlega þvert á inntak textans.
Mickey Hess segir frá því er Clint frændi giftir sig, sem endar heldur illa fyrir Clint. Hess flytur ljóðið skemmtilega og tónlistin er lifandi, en sagan sjálf / ljóðið er frekar tilgerðarleg. Dream a Little Dream of Me kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum, enda flytur Jim James lagið eins og það er, þrungið rómantík og tilfinningasemi og syngur það einkar skemmtilega. Family Man er mjög áhrifamikið ljóð í sterkum flutningi W. Loran Smith.
Næstsíðasta lag plötunnar stingur nokkuð í stúf við það sem á undan er komið og spillir í raun heildarmyndinni, spunastemmningunni og heillandi einfaldleikanum, með hljóðversíburði. Það er einnig ljóður á að ekki sé getið um flytjanda ellefta ljóðsins sem er mjög skemmtileg hringrás, en samkvæmt leynilegum upplýsingum er þar á ferð saxófónleikarinn Danny O'Bryan.
Árni Matthíasson