Ron Whitehead

Annað sjálf Birgittu

Um vef sinn hefur Birgitta Jónsdóttir skáld tengst mörgum listrænum viðburðum úti um víða veröld.



WOMB of creation, Renasissance 2001, Voices Without Restraint, goð og gyðjur, ljóð, myndverk...Vefur Birgittu Jónsdóttur, Sköpunarvömbin, liggur um víða veröld, jafnvel til heimkynna týndra mamos-indíána í Kólumbíu í Suður- Ameríku.


VERK:: SAFN'FÖSTUDAGSBLAD DAGS.:: 990319 \: SLÖGG:: Annað sjalf birgittu STOFNANDI:: GUHE \: \: Annað

sjálf Birgittu

Um vef sinn hefur Birgitta Jónsdóttir skáld tengst mörgum listrænum viðburðum úti um víða veröld. Vefurinn heitir Womb of Creation og fékk nýlega góða dóma á bandarískri sjónvarpsstöð. Gunnar Hersveinn skoðaði vefinn og heimsótti Birgittu sem sagði honum frá hugmyndum sínum og væntanlegum verkum. Vefurinn var valinn besta íslenska heimasíðan árið 1996 af Tölvuheimum.

WOMB of creation, Renasissance 2001, Voices Without Restraint, goð og gyðjur, ljóð, myndverk ... Vefur Birgittu Jónsdóttur, Sköpunarvömbin, liggur um víða veröld, jafnvel til heimkynna týndra mamos-indíána í Kólumbíu í Suður- Ameríku. Á Netinu hefur Birgitta skapað sitt annað sjálf og lagt í sjóð ljóð sín, myndir, tónlist, áhugamál og upplýsingar um sjálfan sig og afrek.

"Mér finnst tengingarnar við aðra heillandi á Netinu, öfugt við að pukra einn með sína síðu," segir Birgitta. Womb of creation hefur spurst út og það er oft leitað til Birgittu á Netinu vegna ákveðinna verkefna eða til að bjóða henni að vera með á listrænum atburðum; í bókum, á Netinu, á erlendri grund og ýmsum samkomum.

Og hún fer og er með. Hún var til dæmis með á áhrifamikilli skáldahátíð í Medellin Kólumbíu í Suður-Ameríku árið 1996 og las upp fyrir 5000 áhugasama áhorfendur. Þar kynntist hún fjórum mamos-indíánum sem birtust í fyrsta sinn utan heimkynna sinna til að kynna menningu sína og goðafræði sem á rætur að rekja a.m.k. 3600 ár aftur í tímann ... það er saga sem kunngerð verður síðar. Hún hefur verið með í ýmiskonar alþjóðlegum verkefnum á Netinu eins og: cybermad artfactory, pocket protector, project protector, project equinox, Allen Ginsberg memorial comitee sellout, renaissance 2001, Nordic Realms og telepoetics.

Hið óvænta á Netinu

Womb of creation hefur verið opin í rúmlega þrjú ár og er hellt fyllt af list og ljóðum. Vefurinn var valinn besta íslenska heimasíðan árið 1996 af tímaritinu Tölvuheimur (PC World) og núna í febrúar var hann valinn í "Hall of Fame" vefsmiða í Bandaríkjunum: Sjónvarpsstöðin ZDTV er helguð tölvum og Netinu og er tengd 10 milljón heimilum í Bandaríkjunum og eitthvað í Japan. Þetta er ný sjónvarpsstöð bæði fyrir fagfólk og almenning og er reglulega valinn áhugaverður vefur til umfjöllunar. Þeir bestu fara svo í Hall of Fame sjónvarpsstöðvarinnar.

"Eitt það skemmtilegasta við að vera á Netinu er að þar gerist margt óvænt. Heima hafa fáir samband við mann vegna viðburða ­ en einn daginn liggja fyrir skilaboð að utan, boð um að lesa einhvers staðar ljóð eða um að kynna vefinn í sjónvarpi," segir Birgitta.

Nýlega var henni boðið að vera með í verkefni í Portúgal í júní sem heitir Earth eða Jörð og mun í haust skipta yfir í nafnið With no borders eða Án landamæra og tengjast Renaissance 2001. Árið 1999 er annars ekki snautt viðburðum, því í sumar mun Ron Whitehead, skáld og annar höfuðpaura The Literary Renaissance, gefa út bókina Wake up eftir Birgittu og annað skáld, sem finna má á vef hennar, Mike Pollock.

Birgitta starfar með Ron Whitehead og er með aðrar höfuðstöðvar The Literary Renaissance á sínum snærum/herðum. Hinar eru í Kentucky. Ron skrifar ljóð í anda beat-skáldanna. Hann sagði í viðtali við Morgunblaðið 10. þessa mánaðar: "Árið 1992 byrjaði ég að gefa út bækur, ritstýra verkum og skipuleggja ljóðaviðburði víðs vegar um Bandaríkin og ég stofnaði samtökin Literary Renaissance sem eiga sér það markmið að stuðla að "gagnrýninni læsi" í heiminum og kynna ljóðlist og skáldskap sem víðast." Það er ef til vill ekki tilviljun að Ron og Birgitta nemi samhljóminn. Veggspjöld eru eitt af útgáfufyrirbærum Whitehead. Veggspjald númer 101 er Michael Dean Pollock - Desert og númer 102 er Birgitta Jónsdóttir með ljóðinu Countries Without Borders.

Birgitta er í hljómsveit með Ron, Michael og Daniel Pollock. Grúppan heitir Voices Without Restraint og mun gefa út disk í sumar og vera á hljómleikaferðalagi í Bandaríkjunum og Evrópu með hljómsveitinni Sigur Rós.

Á skjön við vanann

Listin, sem Birgitta hefur tengst á Netinu, er ekki eftir hefðbundinni uppskrift, hegðunarreglum og gildismati menningarklíkunnar, fremur er hún "beatnik" á skjön við efnishyggju og vanann, þar sem jafnvel málverk berast með tölvupósti og hver og einn getur prentað það út og hengt upp á vegg. Annars eru merkimiðar ekki vinsælir. Tvö ljóð eftir Birgittu eru einmitt í nýútkominni bók sem sýnir fáránleika stimplanna með heiti sínu: Generation X poetry: In Our Own Words, ritstýrð af Marlow Peerge Weaver. Í henni eiga einstaklingar víðsvegar úr heiminum á aldrinum 16­34 ára ljóð. Hún á meðal annars ljóðið Bone day sem hún samdi daginn sem jarðneskar leifar eiginmanns hennar, Charles Egils Hirt, fundust, 17. júní 1998.

Heimur sem Birgitta berst gegn er heimur þar sem einstaklingarnir eru hættir að trúa því að þeir geti breytt einhverju, samfélag þar sem réttlát reiði má sín einskis. "Bítið hefur brotið niður fleiri múra en margir gera sér grein fyrir. Þegar höfundur A Coney Island of the Mind, Lawrence Ferlinghetti, var í Tékklandi flykktist fólk að til að fagna honum. Það hafði lesið bókina hans og orðið fyrir áhrifum. Havel sendi forsetabifreiðina eftir Lawrence og tekið var á móti honum við forsetahöllina sem þjóðhöfðingi væri, með heiðursskotum og öllu tilheyrandi."

A Coney Island of the Mind er með mest seldu ljóðabókunum í heiminum, en höfundinum var stungið bak við lás og slá um stund fyrir að hafa gefið út bækurnar Howl eftir Ginsberg og Naked Lunch eftir Burroughs. Réttarhöldin urðu til þess að auka ritfrelsið um gervallan vestrænan heim.

Netið er opin dyr fyrir Birgittu og aðra þá sem vilja halda sína slóð. Þar eru opnir vegir sem eru tálmaðir hér á landi. Þar mætast hópar sem eiga sameiginleg markmið og sem geta unnið saman og starfað við það að breyta heiminum.

Morgunblaðið/Þorkell LISTIN, sem Birgitta hefur tengst á Netinu, er ekki eftir hefðbundinni uppskrift.

Af vef Birgittu RENAISSANCE 2001 er verkefni skálda, meðal annars um borgina án landamerkja.

Af vef Birgittu AMMA og afi Birgittu, Alla Magga og Árni (d. 1993), léku á ljóðadagskrá sem Birgitta skipulagði.

Af vef Birgittu VINSTRA augað er hulið í eldri verkum Birgittu.